Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ekki svo flókið að fara í mál en....

Málið getur hins vegar haft mjög flóknar afleiðingar. Ég get svo sem ekki fullyrt að Bretar og Hollendingar fari ekki í mál, sérstaklega ekki eftir yfirlýsingar þeirra frá því í dag. En það fer ekkert á milli mála að á heildina litið munu þeir tapa meiru á að fara í mál heldur en að láta þetta bara gleymast.

Það eru nefnilega bara tvær niðurstöður í boði, annað hvort vinna þeir málið eða tapa.

Vinnist málið fyrir dómstólum þá verður komið fordæmi fyrir því að það sé full ríkisábyrgð á innistæðutryggingum.   Sem er nokkuð sem ekkert ríki getur staðið undir verði allsherjarhrun bankakerfis í landinu.  Við gátum það ekki og enn þá síður munu lönd eins og Bretland sjálft geta það.  Þetta er eitthvað sem enginn innan ESB vill sjá.

Á hinn bóginn geta þeir tapað málinu fyrir dómstólum og þá kemur í ljós að við, almenningur í landinu en ekki ríkisstjórn, höfðum rétt fyrir okkur allan tímann.  Sem mun þýða þvílíka álitshnekki fyrir bæði Breta og Hollendinga fyrir að hafa verið að níðast á örþjóð einhvers staðar úti í ballarhafi vegna skiptimyntar.  Þar sem að þó upphæðirnar fyrir okkur hafi verið allt annað en skiptimynt þá var þetta ekkert annað fyrir Bretum og Hollendingum.  Þetta var eingöngu gert til að sýna fram á yfirburði þessa fyrrum nýlenduherra yfir litla Íslandi.  Þeim mistókst. 


mbl.is Það getur orðið flókið að fara í mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálfsögðu er Sjálfstæðisflokkurinn að klofna.

En á sama hátt eru hinir flokkarnir að klofna líka. Ég held að það þurfi ekkert að minnast á stöðuna innan VG en ég hef enga trú á öðru en að stór hluti Samfylkingarfólks hafi líka kosið nei í þessum kosningum. Ég veit að ég gerði það. Að vísu hef ég boðað að ég ætli að segja mig úr Samfylkingunni en ég hef ekki komist í það. Ég á bágt með að trúa að ég sé eini skráði Samfylkingarfélaginn sem kaus nei. Og þar af leiðandi tel ég nokkuð augljóst að Samfylkingin er klofin líka. Þó það væri ekki út af neinu öðru en að þetta hefur verið eitt stærsta mál hennar síðan hún komst í ríkisstjórn.

Framsókn virðist vera eini flokkurinn sem er ekki að klofna en það gæti meira en vel verið að það sé bara vegna þess að þeim tekst betur upp við að fela það en hinum flokkunum.

En burt séð frá því þá væri óskandi að Sigmundur stæði við stóru orðin og bæri fram vantrauststillöguna strax eftir helgi.  Og svo getur Bjarni gert slíkt hið sama vikuna þar á eftir, svo Þór Saari og svo koll af kolli þar til hún verður samþykkt. 


mbl.is Fráleitt að Sjálfstæðisflokkurinn sé að klofna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið leiðist mér að segja það...

En ég er sammála Styrmi. Það verður að gera þessari sorglega vanhæfu ríkisstjórn það alveg ljóst að henni er ekki stætt á að sitja á þingi lengur. Hvort sem það er gert með undirskriftasöfnun, annarri búsáhaldabyltingu eða á einhvern annan hátt.  Allsherjar uppreisn kemur upp í huga mér þegar ég hugsa um einhvern annan hátt.

Hagstæðast væri að sjálfsögðu fyrir alla aðila ef það væri gert í gegnum undirskriftasöfnun eins og Styrmir stingur upp á.  Þá þyrfti ekki að borga lögreglu óhemju fjárhæðir í yfirvinnukaup fyrir að verja þessa fégráðugu vitleysinga sem sitja á þingi ásamt því að það yrði enginn kostnaður vegna skemmda á alþingishúsinu eða öðrum dauðum hlutum.  Að því ógleymdu að enginn slasast í slíkri undirskriftasöfnun, allavega ekki líkamlega. 


mbl.is Undirskriftir gegn stjórninni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjósa Framsókn???

Það hefur komið fyrir einstaka sinnum að ég hef hugsað mér eitt augnablik að kjósa Framsóknarflokkinn. Það nefnilega gerist af og til að það koma vitglampar í augu meðlima þess flokks. Eins og núna, með þessari ályktun þeirra um innanríkismál.

Það eru nokkur atriði í henni sem eru mjög skynsöm og ég er fyllilega sammála. Þar má helst minnast á raunverulegan aðskilnað framkvæmda- og löggjafarvalds, persónukjör (hvernig svo sem á að framkvæma það, nokkuð augljóst að stjórnlagaþingskerfið virkaði ekki), að vægi atkvæða sé sem jafnast og öflug löggæsla svo eitthvað sé nefnt.

En svo skjóta þeir sig jafnharðan í fótinn og missa örugglega mitt atkvæði allavega og líklega fleirri sem eru að leita að einhverju "nýju" til að kjósa.  Sem dæmi um atriði úr ályktuninni sem kemur alfarið í veg fyrir að ég geti kosið þennan flokk er að strax eftir að þeir segjast vilja að vægi atkvæða sé sem jafnast þá hafna þeir alfarið að landið verði eitt kjördæmi en það er eina raunhæfa leiðin til að vægi atkvæða sé alveg jafnt og verði það áfram.  Önnur dæmi sem er vert að minnast á er að þeir vilja áfram hafa þjóðkirkju, eitthvað sem er að mínu mati löngu úrelt fyrirbæri.  Sérstaklega hjá þjóð sem yrkir sína trú jafn lítið og raunin er hér á landi.  Og að lokum að flugvöllurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýrinni.


mbl.is Styrkja þarf stöðu Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef ekki nú, hvenær þá?

Hversu skýr þurfa skilaboðin til ykkar eiginlega að vera til að þið skiljið að tími ykkar er liðinn? Þarf virkilega að fara í aðra búsáhaldabyltingu til að þið segið af ykkur? Að drulla upp á bak byrjar ekki einu sinni að lýsa störfum þessarar svokölluðu "Vinstri, norrænu velferðarstjórn".

Verst er að jafnvel þó að þessi stjórn myndi segja af sér og boðað yrði til kosninga þá er ekkert í boði til að kjósa sem væri skárra, nema þá mögulega Hreyfingin ef hún gæti þá stillt upp listum í tæka tíð.  Ég er ansi hræddur um að við fengjum sjálfstæðisflokk og framsókn aftur í stjórn ef það yrði kosið nú.

 Ég segi aftur það sem ég hef áður sagt, við þurfum nýtt raunverulegt stjórnmálaafl í þessu landi okkar.  Stjórnmálaafl sem raunverulega stendur við það að breyta stjórnskipan landsins og ýta út gömlum starfsháttum sem mikið til hafa byggst á spillingu og góðvinagreiðasemi.  Hefði ég fjármagnið og tengslanetið til þá myndi ég standa fyrir stofnun slíks afls en því miður þá hef ég hvorugt.


mbl.is Ekki tilefni til kosninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt Ísland

Er nákvæmlega það sama og gamla Ísland. Enginn dreginn til ábyrgðar um neitt. Góðvinir stjórnar fá embætti á silfurfati. Og fólk sem þykist axla ábyrgð er hyglt með því að því er veitt sama embætti aftur.

Ég veit ekki með annað vinstra fólk en ég batt miklar vonir við vinstri stjórn á Íslandi.  Loksins skyldi vera stefnt að jöfnuði í þjóðfélaginu og spillingarlausu stjórnkerfi.  Loksins "norræn velferðarstjórn" á Íslandi.

Ég get ekki að því gert en að hálfsjá eftir að hafa ekki kosið Sjálfstæðisflokkinn í seinustu kosningum.  Hefðum við verið með Sjálfstæðisflokkinn í stjórn þá hefði maður í það minnsta ekki orðið fyrir jafn miklum vonbrigðum með stjórnina eins og raunin er í dag.  Það hefði jafnvel getað komið manni á óvart hvað hefði gerst í stjórn þessa lands eftir skellinn sem þeir fengu.  

Nú hef ég persónulega fengið nóg og hef ákveðið að segja mig úr Samfylkingunni.  Þetta var seinasti dropinn sem til þurfti.  Svo á bara eftir að koma ljós hversu vel mér gengur að losna úr klóm stjórnmálaflokks.  Hef heyrt að það gangi mjög misvel.  Ég hvet annað vinstra fólk sem er flokksbundið til hins sama.  Ég held að þörf sé á nýju vinstra afli í þessu landi.  Afl sem heldur hinni vinstri hugsjón raunverulega á lofti.


mbl.is Kosið í landskjörstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikafirrtir þingmenn

"Það er mat meiri hluta samráðshópsins að með þessu sé niðurstaða og ákvörðun Hæstaréttar ekki með nokkrum hætti vefengd" Svo segir í þingsályktunartillögu um stjórnlagaráð.

Nú spyr ég á móti hvernig er hægt að halda því fram að ákvörðun Hæstaréttar sé ekki með nokkru móti vefengd ef þeir sem voru kosnir eru svo skipaðir í þetta ráð?

Að mínu mati er ógild kosning ógild kosning alveg sama hvernig maður snýr málinu.  Þetta gerir það að verkum að þeir sem voru kosnir á þetta þing voru eðli málsins samkvæmt ekki kosnir þar sem kosningin var ógild.  Ég get snúið þessu á ýmsan hátt sem kemur alltaf á sama stað niður: Kosningin var dæmd ógild.  Að öðru leiti vísa ég í fyrri færslur mínar um þetta mál. 


mbl.is Tillaga um stjórnlagaráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það væri óskandi að íslenskir stjórnmálamenn myndu fylgja slíku fordæmi

Það hefur lengi verið hefði fyrir því annars staðar í Evrópu að stjórnmálamenn segi af sér þegar þeir fá á sig harða gagnrýni eða upp kemst um embættisafglöp.  Ég held að íslenskt stjórnarfar væri töluvert frábrugðið (á góðan hátt) ef íslenskt embættisfólk og stjórnmálamenn myndu fylgja því fordæmi.
mbl.is Utanríkisráðherra Frakklands segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki svo alvarlegir?!?

Steingrímur segir að annmarkar við stjórnlagaráðsleið séu ekki svo alvarlegir að þeir séu ekki óyfirstíganlegir.  Rétt er það að lagalega eru annmarkarnir ekki svo miklir.  Mjög einfalt í framkvæmd meira að segja.  Ríkisstjórnin semur bara lagafrumvarp um stjórnlagaráð, heldur þrjár umræður um það frumvarp ásamt því að senda það í viðeigandi nefnd og samþykkir það svo.  Ekkert mál.

Vandamálið er bara hversu mikið sú aðferð gjaldfellir Hæstarétt.  Að mínu mati þá gjaldfellir þetta Hæstarétt það mikið að við getum eiginlega bara lagt hann niður.  Hans ákvarðanir skipta hvort sem er litlu sem engu máli.


mbl.is Ósammála Ögmundi um ráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skárri af tveimur slæmum kostum

Uppkosning er klárlega skárri kosturinn af tveimur slæmum.  Þ.e.a.s. að skipa stjórnlagráð eða halda uppkosningu.  Skásti kosturinn, eins og ég hef sagt áður, væru nýjar kosningar frá grunni þar sem farið yrði fram á fleiri meðmælendur heldur en var.

Nú getur maður bara vonað að meirihluti þingheims sjái hversu slæmt það væri að skipa stjórnlagaráð og þar með hundsa ákvörðun hæstaréttar.  Ögmundur, Sigmundur og Lilja eru nú þegar komin á blað ásamt einhverjum slatta af stjórnarandstöðuliðum.  Því miður vilja sjálfstæðismenn bara sleppa stjórnlagaþingi alveg en jafnvel það væri skárri kostur heldur en að skipa stjórnlagaráð.

Nú væri bara gaman að sjá fleiri stjórnarliða lýsa yfir andstöðu við þetta stjórnlagaráð og sýna það í verki að þau standi eingöngu við sína eigin sannfæringu á þingi en séu ekki heilalausir rakkar Jóhönnu og Steingríms.


mbl.is Lilja vill uppkosningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband