Er nákvæmlega það sama og gamla Ísland. Enginn dreginn til ábyrgðar um neitt. Góðvinir stjórnar fá embætti á silfurfati. Og fólk sem þykist axla ábyrgð er hyglt með því að því er veitt sama embætti aftur.
Ég veit ekki með annað vinstra fólk en ég batt miklar vonir við vinstri stjórn á Íslandi. Loksins skyldi vera stefnt að jöfnuði í þjóðfélaginu og spillingarlausu stjórnkerfi. Loksins "norræn velferðarstjórn" á Íslandi.
Ég get ekki að því gert en að hálfsjá eftir að hafa ekki kosið Sjálfstæðisflokkinn í seinustu kosningum. Hefðum við verið með Sjálfstæðisflokkinn í stjórn þá hefði maður í það minnsta ekki orðið fyrir jafn miklum vonbrigðum með stjórnina eins og raunin er í dag. Það hefði jafnvel getað komið manni á óvart hvað hefði gerst í stjórn þessa lands eftir skellinn sem þeir fengu.
Nú hef ég persónulega fengið nóg og hef ákveðið að segja mig úr Samfylkingunni. Þetta var seinasti dropinn sem til þurfti. Svo á bara eftir að koma ljós hversu vel mér gengur að losna úr klóm stjórnmálaflokks. Hef heyrt að það gangi mjög misvel. Ég hvet annað vinstra fólk sem er flokksbundið til hins sama. Ég held að þörf sé á nýju vinstra afli í þessu landi. Afl sem heldur hinni vinstri hugsjón raunverulega á lofti.
![]() |
Kosið í landskjörstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 1.3.2011 | 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Það er mat meiri hluta samráðshópsins að með þessu sé niðurstaða og ákvörðun Hæstaréttar ekki með nokkrum hætti vefengd" Svo segir í þingsályktunartillögu um stjórnlagaráð.
Nú spyr ég á móti hvernig er hægt að halda því fram að ákvörðun Hæstaréttar sé ekki með nokkru móti vefengd ef þeir sem voru kosnir eru svo skipaðir í þetta ráð?
Að mínu mati er ógild kosning ógild kosning alveg sama hvernig maður snýr málinu. Þetta gerir það að verkum að þeir sem voru kosnir á þetta þing voru eðli málsins samkvæmt ekki kosnir þar sem kosningin var ógild. Ég get snúið þessu á ýmsan hátt sem kemur alltaf á sama stað niður: Kosningin var dæmd ógild. Að öðru leiti vísa ég í fyrri færslur mínar um þetta mál.
![]() |
Tillaga um stjórnlagaráð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 1.3.2011 | 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 1. mars 2011
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.8.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 226
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar